Sumarhagar
18th júní, 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Í vikunni klipptum við hófa á öllum tryppunum og gáfum ormalyf. Eftir það voru þau rekin í sumarhaga á Miklahóli. Meðfylgjandi eru myndir af skjóttum unghryssum með sumarhagana í baksýn. Ennig eru myndir af brúnstjörnóttri þriggja vetra undan Slettu og Samber og jarpri tveggja vetra undan Hvíta-Sunnu og Aðli.
