19. maí 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Fengum stórglæsilegan brúnskjóttan hest undan Hrund og Þristi frá Feti. Hann er rígmontinn og sperrtur og hefur hlotið nafnið Brynjar. Hann hreyfir sig einnig mjög fallega.
19. maí 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Hryssurnar halda áfram að kasta. Sjöfn kom með rauða hryssu undan Sigri frá Hólabaki. Það fer vel á með systkinunum undan Sveini-Hervari og Hvíta-Sunna fylgist með og bíður síns tíma, en hún ætti að kasta í júní.
Skoða fleiri myndir með frétt »
7. maí 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Í morgun kastaði Lyfting og kom með brúna hryssu. Var það kærkomið því komin voru þrjú hestfolöld, undan Heklu, Glóblesu og Gjöf. Faðirinn af öllum þessum folöldum er Sveinn-Hervar.
Skoða fleiri myndir með frétt »
29. apríl 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Hún er svipmikil Hvíta-Sunna þar sem hún veltir fyrir sér fyrsta folaldi sumarsins hjá Sauðárkróks-Hestum.
29. apríl 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Fyrsta folaldið er fætt. Rauðblesóttur hestur undan Sveini-Hervari og Heklu. Stórt og myndarlegt folald sem hefur hlotið nafnið Broddi.