15. september 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Í byrjun júní voru veturgömlu tryppin gerð bandvön. Ein af þeim var Særún dóttir Hvítu-Sunnu og Aðals frá Nýja-Bæ, gullfalleg og sérlega faxprúð. Særún var fljót að læra og voru þessar myndir teknar þegar hún var búin að vera einn dag inni.
Skoða fleiri myndir með frétt »
15. september 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Loksins eftir langt hlé erum við komin af stað með fréttaflutning. Svala hefur tekið að sér umsjón með síðunni og ætlar að koma reglulega með fréttir af starfinu. Þarna er Svala með höfðingjann Blæ 32 vetra á Miklahóli í sumar.
17. júní 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Hvíta-Sunna kastaði sl. föstudag. Leirljós blesóttur sokkóttur hestur kom í heiminn. Faðirinn Hróður frá Refsstöðum. Þetta er fyrsta hestfolald Hvíta-Sunnu en hún hefur gefið okkur þrjár hryssur. Þau mæðgin dvöldu ekki lengi á Króknum heldur fóru suður yfir heiðar þar sem Hvíta-Sunna mun hitta Krák frá Blesastöðum. Þeim litla hefur ekki enn verið gefið nafn.
Skoða fleiri myndir með frétt »
5. júní 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Þegar Auður ætlaði að líta á nýkastað folald sitt undan Hetju og Ískristal kom Hekla hlaupandi á móti henni. Var auðséð á Heklu að eitthvað var að. Þegar Auður steig útúr bílnum tók Hekla á rás og hljóp beinustu leið inní hús og beið Auðar með hausinn útum dyrnar. Það kom í ljós að hún gat ekki komið frá sér risastóru folaldi og þurfti hjálp. Kallað var á dýralækni og tókst að draga folaldið út og sem betur fer var það lifandi. Svartur hestur undan Gammi frá Steinnesi.
Skoða fleiri myndir með frétt »
1. júní 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Hér koma skemmtilegar myndir af henni Hetju okkar sem kastaði á dögunum. Þetta er hryssa undan Ískristal frá Sauðárkróki (Huginssyni).
Skoða fleiri myndir með frétt »