Fréttir RSS

Hrafntinna

1. febrúar 2009 - Sauðárkróks-Hestar


Rákumst á þessar myndir af Hrafntinnu og Guðmundi frá því í sumar. Hrafntinna er undan Sunnu og Hilmi, mögnuð hryssa en því miður hefur hún aldrei getað átt folöld.

Skoða fleiri myndir með frétt »

Á Miklahóli

29. janúar 2009 - Sauðárkróks-Hestar

Vorum í sveitinni um helgina og tókum nokkrar myndir. Hér er Auður með hina veturgömlu Esju dóttur Þrists frá Feti og Heklu. Kná vill vera með en hún er fylfull við Þristi.

Á leið til nýrra heimkynna

21. janúar 2009 - Sauðárkróks-Hestar

Mikil hrossasala hefur verið í haust og var þessi mynd tekin í vikunni af 6 folum frá okkur sem allir eru á leið til Þýskalands. Allt eru þetta efnilegir folar, mismikið tamdir. Vonandi reynast þeir nýjum eigendum vel en alltaf er  eftirsjá þegar hestar fæddir og uppaldir hjá okkur kveðja.

Arabi og Auður!

17. desember 2008 - Sauðárkróks-Hestar

Það fer vel á með þeim Araba og Auði en Arabi er 1v. gamall, ógeltur undan Glym frá Sauðárkróki og Eldingu. Gullfallegur foli með góðar hreyfingar og frábært geðslag.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Frumtamningar

30. nóvember 2008 - Sauðárkróks-Hestar

Við erum aðeins byrjuð að eiga við hryssur á 4 vetur. Ein jarpskjótt Gleði undan Brjáni og Gjöf og þrjár hryssur undan Huginn frá Haga sem heita Arnkatla, Blædís og Ísold. Allt álitlegar hryssur.
Skoða fleiri myndir með frétt »