11. apríl 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Laugardag fyrir páska var Kvennatölt Norðurlands haldið í Svaðastaðahöllinni. Svala tók þátt með Þyril í flokknum minna keppnisvanar. Eftir forkeppni stóðu þær efstar og jafnar Svala og Fjóla á S-Skörðugili. Í úrslitum urður þær einnig jafnar í efsta sæti en eftir sætaröðun dómara hafði Svala sigur. Höfðinginn Þyrill stendur alltaf fyrir sínu.
Skoða fleiri myndir með frétt »
3. apríl 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Skuld er hryssa á fjórða vetur undan Lyftingu og Hætti frá Þúfum. Hún hefur verið í tamningu hjá Gísla og Mette, en er núna heima í hvíld. Þetta er efnileg klárhryssa og stefnt er með hana í dóm í vor. Myndirnar sem fylgja voru teknar þegar við sóttum Skuld.
Skoða fleiri myndir með frétt »
5. mars 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Alltaf er það svo að maður bindur meiri vonir við sum tryppi en önnur. Arabi er stóðhestur sem verður 3v nú í vor. Við höfum alltaf haft mikla trú á honum. Hann er glæsilegur hestur, hreyfingafallegur og með gott geðslag. Síðan leiðir tíminn í ljós hvort Arabi stendur undir væntingum. Hann er undan Glym og Eldingu frá Sauðárkróki.
Skoða fleiri myndir með frétt »
20. febrúar 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Það var frábært veður í dag og mikið riðið út! Myndavélin var tekin fram og nokkrar vetrarmyndir teknar. Á myndunum eru Héla Faxadóttir og Höfði undan Brjáni Rvk.
Skoða fleiri myndir með frétt »
16. janúar 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Í dag var öllum tamningarhrossunum gefið frí og sleppt út á tún. Voru þau úti fram í myrkur og voru hressileg þegar þau komu inn í kvöldgjöfina. Teljum við þetta nauðsynlega daga inn á milli. Guðmundur Peng 4 ára var sko ekki á því að gefa Spegli frí og tók klukkutíma þjálfun í gerðinu.
Skoða fleiri myndir með frétt »