13. júní 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Við eigum tvo þriggja vetra fola sem eiga að verða miklir vekringar í framtíðinni! Þeir eru báðir undan Kjarval en mæðurnar eru Ólga og Þoka . Það eru mikil skeiðgen í þessum bræðrum og vonandi standa þeir undir væntingum. Allt uppeldi hefur miðast við það að gera þá nógu öfluga og Ólgu sonurinn gengur enn undir móður sinni. Hvort þetta heppnast mun tíminn leiða í ljós en það er gaman að láta sig dreyma.
13. júní 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Fengum gullfallega rauða hryssu undan Sjöfn og Óskasteini. Hún er háfætt með grannan háls og hreyfingafalleg. Eftir að hafa séð þessar tvær hryssur undan Óskasteini bíðum við spennt eftir að Urður kasti en hún er einnig fylfull við honum.
Skoða fleiri myndir með frétt »
13. júní 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Folald númer þrjú er undan Glóblesu og Óskastein frá Íbishóli. Við fengum jarpa hryssu sem fer um á fallegu tölti, fríð og fínleg.
Skoða fleiri myndir með frétt »
21. maí 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Folald númer tvö kom í heiminn í gær. Hetja kastaði Brúnstjörnóttri hryssu undan Hvítserk frá Sauðárkróki. Þetta er fyrsta afkvæmi Hvítserks sem fæðist en hann er þriggja vetra stóðhestur undan Kná og Álfi frá Selfossi.
Með fréttinni eru myndir af mæðgunum og stoltum föður.
Skoða fleiri myndir með frétt »
19. maí 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Fyrsta hryssan kastaði í vikunni, Otursdóttirin Viðja kom með rauða hryssu. Faðirinn er Roði frá Múla. Búið er að sýna þrjú hross undan Viðju, öll í fyrstu verðlaun og er meðaltal hæfileika 8,39. Það verður því spennandi að fylgjast með þeirri rauðu.
Annars er það að frétta af okkur að allt er stopp útaf pestinni og ekki útséð hvenær við getum byrjað aftur.
Skoða fleiri myndir með frétt »