Fréttir RSS

Hátíð

17. apríl 2009 - Sauðárkróks-Hestar

hatidsaudarkrokitolt2Fyrsta afkvæmi Hvítu-Sunnu er nú á fjórða vetur. Hún ber nafnið Hátíð og er undan Hróðri frá Refsstöðum. Hátíð er í tamningu hjá Ella og Viðju í Langholti og er óhætt að segja að hún fari vel af stað. Eigendur Hátíðar eru Hannes og Inga sem kenna hrossarækt sína við Hamarsey. Myndirnar eru fengnar að láni hjá þeim. Hvíta-Sunna hefur eignast þrjú afkvæmi, allt hryssur, og ef allt gengur eftir eignast Hátíð alsystkyni í vor.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Kómeta

5. apríl 2009 - Sauðárkróks-Hestar

kometaKómeta undan Kolfinni og Hervu verður 6v. nú í vor. Hún getur hreyft sig vel þegar sá gállinn er á henni.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Anna Lóa og Héla

23. febrúar 2009 - Sauðárkróks-Hestar

alg31Anna Lóa kom úr Reykjavík um síðustu helgi og brá sér á bak. Hryssan heitir Héla fra Sauðárkróki 5v. klárhryssa undan Faxa frá Hóli.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Ungur nemur gamall temur

17. febrúar 2009 - Sauðárkróks-Hestar

dscf50011Þeir eru góðir félagarnir Guðmundur Peng 3 ára og Högni frá Högnastöðum 20 vetra. Þeir tóku létta æfingu í vetrarblíðunni um síðustu helgi.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Hrafntinna

1. febrúar 2009 - Sauðárkróks-Hestar


Rákumst á þessar myndir af Hrafntinnu og Guðmundi frá því í sumar. Hrafntinna er undan Sunnu og Hilmi, mögnuð hryssa en því miður hefur hún aldrei getað átt folöld.

Skoða fleiri myndir með frétt »