Fréttir RSS

Höfði frá Sauðárkróki

17. febrúar 2011 - Sauðárkróks-Hestar

Höfði frá Sauðárkróki og Ingólfur Pálmason gerðu góða ferð á Hvammstanga þar sem þeir tóku þátt í fjórgangi í liðakeppni Húnvetninga. Þetta var fyrsta fjórgangsmót Höfða og stóðu þeir félagar sig með mikilli prýði og enduðu í fyrsta sæti með einkun uppá 7,13 . Þetta er góð byrjun hjá efnilegum keppnishesti og verður gaman að fylgjast með framhaldinu. Höfði er í eigu Sauðárkróks-Hesta og Ingólfs Pálmasonar sem eignaðist helminginn í hestinum síðastliðið haust. Því miður eigum við ekki myndir frá Hvammstanga en meðfylgjandi eru myndir af Höfða frá síðastliðnum vetri undir stjórn Guðmundar.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Blær fallinn

25. janúar 2011 - Sauðárkróks-Hestar

Við tókum þá ákvörðun fyrir nokkru að fella Blæ. Hann var 33 vetra og hafði látið á sjá síðasta árið. Þessi höfðingi á það skilið að um hann sé fjallað í nokkrum línum.

Hann var fæddur 1977 undan Hrafnhettu og Gusti 923. Hann var stórglæsilegur sem folald og minnti mjög á föður sinn í öllu fasi og myndarskap. Hélt hann stolti sínu til hinsta dags, styggur og gerði sér mannamun.

Veturgamall fór hann að Stóra – Hofi til Sigurbjörns Eiríkssonar sem ætlaði að sjá um uppeldi og tamningu. Aðeins var hann notaður og undan honum kom meðal annars gæðingurinn og glæsihryssan Blökk frá Efri – Brú. Einnig er gaman að geta þess að hinn frábæri gæðingur Tenór frá Túnsbergi er dóttur dóttur sonur Blæs.

En það átti ekki fyrir Blæ að liggja að verða stóðhestur. Á fjórða vetur er hann í tamningu hjá þeim Alberti Jónssyni og Freyju Hilmarsdóttur. Þorkell Bjarnason er beðinn að líta á hestinn og hann telur sig ekki geta mælt með honum sem stóðhesti þrátt fyrir augljósa reiðhestkosti. Fótagerðin sé ekki traustvekjandi. Það var ákveðið að gelda Blæ. Árið eftir 1982 fer Blær í kynbótadóm sem afkvæmi móður sinnar sem stefnt er með á Landsmót. Blær hlýtur góðan dóm, 7.94 fyrir sköpulag 8,42 fyrir kosti og 8,18 út. Þessi dómur hefði nægt Blæ til að vinna 5v. flokk stóðhesta á mótinu.

Áhyggjur ráðunautsins um slaka fótagerð reyndust óþarfar. Blær var í brúkunn til þrítugs, og fæturnir dugðu vel og voru óbilaðir til hinsta dags.

Ekki var þó þessi mikli gæðingur sparaður um daganna, keppnishestur framan af en síðar notaður til útreiða, ferðalaga sem gangnahestur og hvergi dregið af.

Blær var stórbrotinn gæðingur, miklum kostum búinn, með ódrepandi vilja. Á 14. degi á ferðalagi var hann bestur. Hann var skapmikill og stoltur en bar virðingu fyrir húsbónda sínum og þjálfara en engum öðrum var hleypt of nærri.

Minning um stórbrotinn hest lifir.
Skoða fleiri myndir með frétt »

2010-2011

30. desember 2010 - Sauðárkróks-Hestar

Við höfum verið í skýrsluhaldi undanfarin kvöld. Fastur liður milli jóla og nýárs. 12 hryssur eru með staðfestu fyli eftir sumarið og verður spennandi að sjá útkomuna næsta sumar.

Hvíta-Sunna – Kvistur Skagaströnd
Kná – Glymur Skeljabrekku
Sletta – Þristur Feti
Glóblesa – Ljóni Ketilsstöðum
Elding – Óskasteinn Íbishóli
Hetja – Arabi Sauðárkróki
Venus – Sveipur Hólum
Urður – Sveipur Hólum
Hekla – Sveipur Hólum
Kómeta – Byr Mykjunesi
Jarlhetta – Brimnir Ketilsstöðum
Lyfting - Hrímnir Ósi/Óskasteinn íbishóli. Sónaðist geld frá Hrímni, fór þá til Óskasteins og sónaðist frá honum með stóru fyli, þannig að þetta er spurning.

Með fréttinni er myndir af Arísi Kráksdóttur, Teistu Þristsdóttur og Atgeir Arnoddssyni frá því í sumar.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Gleðileg jól

24. desember 2010 - Sauðárkróks-Hestar

Sauðárkróks-Hestar óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Loksins

20. desember 2010 - Sauðárkróks-Hestar

Þá er loksins komið að því að  setja nokkrar línur hér inn. Haustið og það sem liðið er af vetri hefur verið rólegt þegar kemur að hestum. Ekki þó alveg hjá Svölu sem stundar nám við Háskólann á Hólum. Er á fyrsta ári í hestafræði. Guðmundur gerðist togarasjómaður seinni hluta sumars og er búinn að vera meira og minna úti á sjó. Tveir stóðhestar í okkar eigu Hvítserkur og Arabi báðir á fjórða vetur voru fumtamdir í haust annar í Þúfum hinn á Narfastöðum.  Báðir fara vel af stað, hestefni með úrvals lund. Siggi Matt gerði einnig Sækötlu ( Hvíta – Sunna og Sær ) reiðfæra og segir hana rakið efni. Nú förum við að tína inn tamningartryppi og setja allt af stað, og við ætlum okkur einnig að flytja reglulega fréttir af starfseminni hér á síðunni. Með fréttinni fylgir mynd af Araba frá því í sumar.