17. júlí 2005 - Sauðárkróks-Hestar
Hryssurnar og folöldin voru rekin á fjöll í dag, þar sem þau verða fram í miðjan september. Á myndinni má sjá Guðmund koma úr rekstrinum á hestinum Högna frá Högnastöðum, dugnaðarforki sem er albróðir gæðingsins Svarts frá Högnastöðum.
9. júlí 2005 - Sauðárkróks-Hestar
Hilmissonurinn Vinur frá Sauðárkróki stóð sig vel á svissneska meistaramótinu sem haldið var um síðastliðna helgi. Hann sigraði bæði í 100m og 250m skeiði. Var þetta frumraun hans í 250m þar sem hann náði góðum tíma 22.9. Knapi var eigandinn Marcus Albrecht.
3. júlí 2005 - Sauðárkróks-Hestar
Hófar voru snyrtir á tryppunum og þeim gefið ormalyf áður en þeim var sleppt í sumarhagana. Ganga þau í fjalllendi Miklahóls í sumar þar sem fjölbreytt landslag og góðir hagar bíða þeirra.
1. júlí 2005 - Sauðárkróks-Hestar
Júlímánuður heilsaði vel í Skagafirðinum, og skartaði fjörðurinn sínu fegursta um kvöldið.
12. júní 2005 - Sauðárkróks-Hestar
Nokkrar af hryssum okkar eru nú hjá ungfolanum Hætti frá Þúfum.Háttur er í eigu Mette Mannseth og er undan Lygnu frá Stangarholti og Eið frá Oddhól.