Fréttir RSS

Folöld

23. maí 2011 - Sauðárkróks-Hestar

Það eru komin tvö folöld hjá okkur. Venus og Kná köstuðu sama daginn. Venus kom með skjótta hryssu undan Sveip frá Hólum og Kná kom með jarpblesóttann hest undan Glym frá Innri-Skeljabrekku. Falleg folöld og von á fleirum næstu daga.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Askja

9. maí 2011 - Sauðárkróks-Hestar

Askja er 4 v. hryssa undan Venusi og Samber frá Ásbrú. Falleg hryssa, sennilega klárhryssa sem er að stíga sín fyrstu töltspor þessa dagana. Það er gaman að temja þessa hryssu hún er geðgóð og hreyfingafalleg. Spenandi hryssa.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Ungar hryssur

29. mars 2011 - Sauðárkróks-Hestar

Tókum þessar myndir af hryssunum Skuld og Paradís. Þær eru báðar á 5 vetur, Skuld undan Lyftingu og Hætti frá Þúfum og Paradís undan Hettu og Þristi frá Feti. Þetta eru eru efnilegar hryssur sem gaman er að vinna með.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Birkir

13. mars 2011 - Sauðárkróks-Hestar

Það var bjart og fallegt veður í Skagafirði í dag. Erum nýbúin að fá til okkar Birki frá Sauðárkróki sem var í tamningu og þjálfun hjá okkur fyrir nokkrum árum. Svala lagði á hann í dag og þá voru þessar myndir teknar. Birkir er 9 vetra undan Hilmi frá Sauðárkróki og Blesu frá Sauðárkróki og er í eigu Sigmundar Skúlasonar.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Hvítserkur

20. febrúar 2011 - Sauðárkróks-Hestar

Hvítserkur undan Kná og Álfi er stóðhestur í okkar eigu sem verður 4 vetra í vor. Fengum þessa mynd senda af honum en hann er búinn að vera einn mánuð í þjálfun hjá Gísla og Mette í Þúfum. Hann lofar mjög góðu, hreyfingamikill og frábært geðslag.