29. október 2006 - Sauðárkróks-Hestar
Hryssan Kná sem var í 5v. flokknum á landsmótinu í sumar er komin heim í hausthagana eftir dvöl hjá stóðhestinum Álfi frá Selfossi. Er hún fylfull og verður gaman sjá afkvæmi þeirra næsta sumar. Á myndinni má sjá Auði með Kná þegar hryssunni var sleppt. Kná er undan heiðursverðlaunahryssunni Kolbrúnu frá Sauðárkróki og Smára frá Skagaströnd.
20. október 2006 - Sauðárkróks-Hestar
Hvíta-Sunna elti Sæ frá Bakkakoti suður eftir landsmót og er komin á Krókinn fylfull.
13. október 2006 - Sauðárkróks-Hestar
Seinni partinn í sumar fórum við með tvær hryssur til Galsa þær Sunnu og Urði. Hvorug þeirra fyljaðist og er það mikill skaði því þetta eru úrvals hryssur. Við erum nú búin að fara 5 sinnum með hryssur undir Galsa og ekki enn fengið folald.
24. júní 2006 - Sauðárkróks-Hestar
Hryssurnar Hvíta-Sunna og Kná eru báðar á leið á Landsmót . Hvíta-Sunna í elsta flokk hryssna en Kná í 5v.flokkinn. Á myndinni eru þær vinkonurnar að safna kröftum fyrir átökin.
9. október 2005 - Sauðárkróks-Hestar
Abel er kominn heim, eftir að hafa verið með hryssum í sumar. Hann lítur mjög vel út og verður frumtaminn fljótlega.