29. apríl 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Hún er svipmikil Hvíta-Sunna þar sem hún veltir fyrir sér fyrsta folaldi sumarsins hjá Sauðárkróks-Hestum.
29. apríl 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Fyrsta folaldið er fætt. Rauðblesóttur hestur undan Sveini-Hervari og Heklu. Stórt og myndarlegt folald sem hefur hlotið nafnið Broddi.
22. apríl 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Guðmundur 2 ára nýkominn úr reiðtúr með afa sínum. Hesturinn er Spegill frá Sauðárkróki, eru þeir félagar góðir saman.
Skoða fleiri myndir með frétt »
21. apríl 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Óðinn frá Sauðárkróki í eigu Ragnars Pálssonar er hæfileikamikill geldingur undan Hágangi frá Narfastöðum og Kleópötru frá Höskuldsstöðum. Guðmundur er búinn að vera með Óðinn í þjálfun í vetur og er hesturinn í mikilli framför þessa dagana.
Skoða fleiri myndir með frétt »
14. apríl 2008 - Sauðárkróks-Hestar
Í góða veðrinu um helgina var tekin þessi mynd af Guðmundi á Boða. Boði er 6v. gamall undan Brjáni frá Sauðárkróki og Lyftingu. Efnilegur klárhestur.