Fréttir RSS

Vinnumaður

30. mars 2008 - Sauðárkróks-Hestar

dscf4303.jpgUm helgar fær Guðmundur oft aðstoð frá nafna sínum við hin ýmsu störf. Á laugardaginn voru þeir nafnar að gefa hryssunum og stóðhestunum og notaði sá litli tækifærið og brá sér á bak á Venusi og Kjarval. Einnig var farið í frumtamningar og sest í fyrsta skipti á einn 3. vetra undan Þristi frá Feti. Í lokin var síðan litið við í fjárhúsunum og skoðuð nýfædd lömb.

Hægt er að skoða fleiri myndir hér.

Vetrarlegt á Króknum!

8. mars 2008 - Sauðárkróks-Hestar

HélaÞað var vetrarlegt á Króknum í dag. Héla frá Sauðárkróki, dóttir Faxa frá Hóli fellur vel inn í vetrarríkið.


Skoða fleiri myndir með frétt »

Birkir

2. mars 2008 - Sauðárkróks-Hestar

BirkirBirkir frá Sauðárkróki er 6v. geldingur sem er í þjálfun hjá Guðmundi. Birkir er sammæðra hinum þekkta Sólon frá Sauðárkróki sem er í eigu Vildimars Bergstað. Faðir Birkis er Hilmir frá Sauðárkróki. Eigandi og ræktandi er Sigmundur Skúlason.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Siríus

2. mars 2008 - Sauðárkróks-Hestar

SiriusÞegar veðrið er gott er mikið tamið. Á myndinni er Guðmundur á stóðhesti á fjórða vetri sem ber nafnið Siríus. Hann er undan Lyftingu og Adam frá Ásmundarstöðum.

Almar

8. febrúar 2008 - Sauðárkróks-Hestar

AlmarVorum að gefa ungu stóðhestunum okkar og smelltum mynd af Almari sem er undan Viðju Otursdóttur og faðirinn er Huginn frá Haga.
Skoða fleiri myndir með frétt »