Fréttir RSS

Frumtamningar

30. nóvember 2008 - Sauðárkróks-Hestar

Við erum aðeins byrjuð að eiga við hryssur á 4 vetur. Ein jarpskjótt Gleði undan Brjáni og Gjöf og þrjár hryssur undan Huginn frá Haga sem heita Arnkatla, Blædís og Ísold. Allt álitlegar hryssur.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Vindskjótt merfolald

28. nóvember 2008 - Sauðárkróks-Hestar

Í sumar keypti húsmóðirin á bænum vindskjótt merfolald. Folaldið er frá Val F. Jónssyni og er komið til okkar á Krókinn. Í ættum þeirrar  skjóttu eru t.d. Náttfari, Kolfinnur. Ófeigur frá Flugumýri og Galdur frá Sauðárkróki. Þetta er myndarlegt folald og liturinn góður.

Sauðárkróks-Hestar komnir úr fríi

4. október 2008 - Sauðárkróks-Hestar

Ætlum að halda áfram að setja inn fréttir á heimasíðuna eftir frekar langt sumarfrí. Meðfylgjandi eru 3 myndir af 1v. hryssum frá okkur sem allar fóru í dóm í sumar.
Sara frá Sauðárkróki, Selma frá Sauðárkróki og Jarlhetta frá Sauðárkróki.
Skoða fleiri myndir með frétt »

Adamssynir

11. júlí 2008 - Sauðárkróks-Hestar

Það er svipur með þessum veturgömlu Adamssonum.

Systkinin…

8. júlí 2008 - Sauðárkróks-Hestar

Þau eru fríð systkinin undan Hætti frá Þúfum.