16th janúar, 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Í dag var öllum tamningarhrossunum gefið frí og sleppt út á tún. Voru þau úti fram í myrkur og voru hressileg þegar þau komu inn í kvöldgjöfina. Teljum við þetta nauðsynlega daga inn á milli. Guðmundur Peng 4 ára var sko ekki á því að gefa Spegli frí og tók klukkutíma þjálfun í gerðinu.
.