Kómeta í fyrstu verðlaun
21st ágúst, 2010 - Sauðárkróks-Hestar
Kómeta frá Sauðárkróki var dæmd á Gaddastaðaflötum í lok júlí. Hún fór í fyrstu verðlaun með 8,5 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið. Það er gott að þessum áfanga er náð með hana. Það var snillingurinn Sigurður V. Matthíasson sem sýndi Kómetu. Eftir sýninguna hitti hún stóðhestinn Byr frá Mykjunesi sem er stórefnilegur 5 vetra hestur. Meðfylgjandi eru myndir af Kómetu og Byr.
