8th október, 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Eins og við sögðum frá um daginn gerðum við veturgömlu tryppin bandvön í sumar. Ein af hryssunum í þeim hópi var Hvönn en hún er undan Viðju frá Sauðárkróki og Hágangi frá Narfastöðum. Það var skemmtilegt að vinna með hana, ör en fljót að læra. Falleg hryssa sem gaman verður að sjá hvernig þróast.