Hátíð
17th apríl, 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Fyrsta afkvæmi Hvítu-Sunnu er nú á fjórða vetur. Hún ber nafnið Hátíð og er undan Hróðri frá Refsstöðum. Hátíð er í tamningu hjá Ella og Viðju í Langholti og er óhætt að segja að hún fari vel af stað. Eigendur Hátíðar eru Hannes og Inga sem kenna hrossarækt sína við Hamarsey. Myndirnar eru fengnar að láni hjá þeim. Hvíta-Sunna hefur eignast þrjú afkvæmi, allt hryssur, og ef allt gengur eftir eignast Hátíð alsystkyni í vor.
