Fylfullar hryssur
26th október, 2009 - Sauðárkróks-Hestar
Loksins eru allar hryssurnar að skila sér heim sem voru hjá stóðhestum í sumar. Vel gekk að að fá fyl í þær og aðeins ein sem hélt ekki,Venus 21v. Stóðhestarnir sem við notuðum voru; Arnoddur Auðsholtshjáleigu, Grettir Grafarkoti, Hvítserkur Sauðárkróki, Krákur Blesastöðum, Moli Skriðu, Orri Þúfu, Óskasteinn Íbishóli, Roði Garði, Roði Múla og Þristur Feti. Eins og alltaf hlökkum við til að sjá hvað fæðist að ári. Á meðfylgjandi mynd er Jarlhetta, en hún er þegar þetta er skrifað á leiðinni heim frá Þúfu þar sem hún var hjá höfðingjanum Orra.