Hryssan Sónata frá Sauðárkróki var sýnd á Hellu í síðustu viku. Hlaut hún fyrstu verðlaun og þar af 9.5 fyrir skeið og 9.0 fyrir vilja. Hún er undan Óði frá Brún og Oturs-dóturinni Viðju frá Sauðárkróki. Með fréttinni fylgir mynd af albróður Sónötu, hinum tveggja vetra Áli frá Sauðárkróki.