Loksins
Mánudagur, desember 20th, 2010
Þá er loksins komið að því að setja nokkrar línur hér inn. Haustið og það sem liðið er af vetri hefur verið rólegt þegar kemur að hestum. Ekki þó alveg hjá Svölu sem stundar nám við Háskólann á Hólum. Er á fyrsta ári í hestafræði. Guðmundur gerðist togarasjómaður seinni hluta sumars og er búinn að vera meira og minna úti á sjó. Tveir stóðhestar í okkar eigu Hvítserkur og Arabi báðir á fjórða vetur voru fumtamdir í haust annar í Þúfum hinn á Narfastöðum. Báðir fara vel af stað, hestefni með úrvals lund. Siggi Matt gerði einnig Sækötlu ( Hvíta – Sunna og Sær ) reiðfæra og segir hana rakið efni. Nú förum við að tína inn tamningartryppi og setja allt af stað, og við ætlum okkur einnig að flytja reglulega fréttir af starfseminni hér á síðunni. Með fréttinni fylgir mynd af Araba frá því í sumar.



