Archive for the ‘Fréttir’ Category

Kómeta í fyrstu verðlaun

Laugardagur, ágúst 21st, 2010

Kómeta frá Sauðárkróki var dæmd á Gaddastaðaflötum í lok júlí. Hún fór í fyrstu verðlaun með 8,5 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið. Það er gott að þessum áfanga er náð með hana. Það var snillingurinn Sigurður V. Matthíasson sem sýndi Kómetu. Eftir sýninguna hitti hún stóðhestinn Byr frá Mykjunesi sem er stórefnilegur 5 vetra hestur. Meðfylgjandi eru myndir af Kómetu og Byr. (meira …)

Ný folöld

Fimmtudagur, júlí 22nd, 2010

Systurnar Hrund og Hetta köstuðu fyrir nokkrum dögum síðan. Hetta kom með rauðstjörnótta hryssu undan Mola frá Skriðu. Fallegt folald sem gormast um á vígabrokki. Hrund kom með brúnskjótta hryssu undan Þristi frá Feti, litskrúðugt og spengilegt folald. Þá á aðeins ein hryssa eftir að kasta en það er Urður sem er fylfull við Óskasteini frá Íbishóli. (meira …)

Arabi

Föstudagur, júlí 16th, 2010

Arabi er þriggja vetra stóðhestur í okkar eigu undan Eldingu og Glym. Við vorum á ferð í A-Húnavatnssýslu um daginn og heilsuðum uppá Araba sem er þar í hryssum. Hann leit vel út og eins og sjá má á myndunum sem við tókum er hann alltaf jafn háreistur og glæsilegur. (meira …)

Hvíta-Sunna köstuð

Þriðjudagur, júní 29th, 2010

Hvíta-Sunna kom okkur á óvart og kastaði fyrr en við áttum von á. Hún kom með brúnstjörnótta hryssu en faðirinn er Krákur frá Blesastöðum. Fínlegt og frítt folald sem fer um á fallegu tölti. Þær mæðgur eru farnar norður í Eyjafjörð þar sem Hvíta-Sunna mun fara undir gæðinginn Kvist frá Skagaströnd. (meira …)

Sumarhagar

Föstudagur, júní 18th, 2010

Í vikunni klipptum við hófa á öllum tryppunum og gáfum ormalyf. Eftir það voru þau rekin í sumarhaga á Miklahóli. Meðfylgjandi eru myndir af skjóttum unghryssum með sumarhagana í baksýn. Ennig eru myndir af brúnstjörnóttri þriggja vetra undan Slettu og Samber og jarpri tveggja vetra undan Hvíta-Sunnu og Aðli. (meira …)