Archive for the ‘Fréttir’ Category

Önnur hryssa undan Óskasteini

Sunnudagur, júní 13th, 2010

Fengum gullfallega rauða hryssu undan Sjöfn og Óskasteini. Hún er háfætt með grannan háls og hreyfingafalleg. Eftir að hafa séð þessar tvær hryssur undan Óskasteini bíðum við spennt eftir að Urður kasti en hún er einnig fylfull við honum. (meira …)

Glóblesa köstuð

Sunnudagur, júní 13th, 2010

Folald númer þrjú er undan Glóblesu og Óskastein frá Íbishóli. Við fengum jarpa hryssu sem fer um á fallegu tölti, fríð og fínleg. (meira …)

Hvítserksdóttir

Föstudagur, maí 21st, 2010

Folald númer tvö kom í heiminn í gær. Hetja kastaði Brúnstjörnóttri hryssu undan Hvítserk frá Sauðárkróki. Þetta er fyrsta afkvæmi Hvítserks sem fæðist en hann er þriggja vetra stóðhestur undan Kná og Álfi frá Selfossi.

Með fréttinni eru myndir af mæðgunum og stoltum föður. (meira …)

Fyrsta folaldið

Miðvikudagur, maí 19th, 2010

dsc_0747Fyrsta hryssan kastaði í vikunni, Otursdóttirin Viðja kom með rauða hryssu. Faðirinn er Roði frá Múla. Búið er að sýna þrjú hross undan Viðju, öll í fyrstu verðlaun og er meðaltal hæfileika 8,39. Það verður því spennandi að fylgjast með þeirri rauðu.

Annars er það að frétta af okkur að allt er stopp útaf pestinni og ekki útséð hvenær við getum byrjað aftur. (meira …)

Kvennatölt Norðurlands

Sunnudagur, apríl 11th, 2010

svala-1Laugardag fyrir páska var Kvennatölt Norðurlands haldið í Svaðastaðahöllinni. Svala tók þátt með Þyril í flokknum minna keppnisvanar. Eftir forkeppni stóðu þær efstar og jafnar Svala og Fjóla á S-Skörðugili. Í úrslitum urður þær einnig jafnar í efsta sæti en eftir sætaröðun dómara hafði Svala sigur. Höfðinginn Þyrill stendur alltaf fyrir sínu. (meira …)