Allar hryssur komnar heim
23rd september, 2007 - Sauðárkróks-Hestar
Fyrir nokkrum dögum kom síðasta hryssan okkar heim úr stóðhestahólfi. Það var Sletta sem var hjá Klerki frá Bjarnarnesi. Henni fylgir brúnstjörnótt hryssa undan Samber frá Ásbrú. Allar hryssurnar okkar sem við héldum eru því fengnar.Eftirtaldir stóðhestar voru notaðir:Sveinn Hervar frá Þúfu, Roði frá Múla, Hnokki frá Þúfum, Hófur frá Varmalæk,Trostan frá Auðsholtshjáleigu, Hvessir frá Ásbrú, Þristur frá Feti, Aðall frá Nýjabæ,Hágangur frá Narfastöðum, Sigur frá Hólabaki og Stormur frá Herríðarhóli.