15. janúar 2012 - Sauðárkróks-Hestar
Nú erum við að skríða af stað með þjálfun á nýju ári. Nokkur hross eru komun á járn og önnur bíða járningar.
Guðmundur var á heimleið á Arðsyninum Mjölni þegar þessum myndum var smellt af þeim félögum. Mjölnir er stöðugt að bæta sig og er að verða býsna eftirtektarverður.
Skoða fleiri myndir með frétt »
15. september 2011 - Sauðárkróks-Hestar
Þá er komið haust og frekar rólegt í hestamennskunni. Tamningartryppin komin í kærkomið frí. Hryssurnar sem hafa verið hjá stóðhestum eru að skila sér heim. Stóðhestarnir Hvítserkur og Dagfari eru komnir heim og hafa það gott í kafgrasi. Dagfari var með 15 hryssum og voru þær allar fengnar. Hvítserkur var með rúmlega 30 hryssum og var um 90% fyljun.
Skoða fleiri myndir með frétt »
22. júní 2011 - Sauðárkróks-Hestar
Dagfari er tveggja vetra stóðhestur undan Hvítu-Sunnu og Hróðri. Hann er heldur betur flottur á litinn, stór og hreyfingafallegur. Dagfari er í hólfi á Njálsstöðum hjá Stefáni bónda og smið og eru hjá honum 15 hryssur. Áður var hann búinn að vera með 4 hryssum á Hólum í Hjaltadal.
Skoða fleiri myndir með frétt »
21. júní 2011 - Sauðárkróks-Hestar
Hvítserkur hefur verið í þjálfun í vetur hjá Gísla og Mette í Þúfum. Stefnt var með hann í dóm núna í vor en áverki á hóf varð til þess að ákveðið var að bíða með sýningu í ár. Við erum hins vegar mjög ánægð með klárinn og sáum hann í reið þegar við sóttum hann. Honum var svo sleppt í hryssur í gær á Ytra-Skörðugili og er fullt undir hann. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar við sóttum hann og þegar honum var sleppt.
Skoða fleiri myndir með frétt »